26. Mars 2020

Sýnum samfélagslega ábyrgð vegna samkomubanns

og tökum þátt í að draga úr útbreyðslu COVID-19.

Aðalumboð Happdrættis DAS í Tjarnargötu 10 í Reykjavík verður lokað frá og með föstudeginum 27. mars þ.t. samkomubanninu verður aflétt.

Endurnýjun fyrir apríl stendur yfir til kl. 16 í dag. Eftir það er hægt að hringja í 561 7757 og fá upplýsingar hvernig hægt verður að endurnýja í aðalumboðinu.

Svarað verður í síma 561 7757 alla virka daga vikunnar frá kl. 10 – 15. Einnig hægt að senda fyrirspurnir á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..

Umboð Happdrættis DAS hafa sum hver opið, frekari upplýsingar um opnunartíma umboða er hægt að fá í 561 7757.

Útdrættir munu fara fram vikulega eins og venjan hefur verið. 

Vinningsnúmer birtast á útdráttardegi á heimasíðu Happdrættis DAS www.das.is og í Morgunblaðinu daginn eftir. Vinningshafar fá send SMS-skilaboð um vinninga.

Öll él birtir upp um síðir – vorið er á næsta leiti.

Kær kveðja,
Starfsfólk Happdrættis DAS